top of page

Föstudagur, fjórði dagur meistaramánaðar.

4.október 2013, -IngaSörens.

jæja,

nú er kominn fjórði dagur meistaramánaðar,
og er árangurinn strax farinn að láta á sér kræla.
ég er með nokkur markmið eins og þau að rækta vináttu og heiðarleika,
 vera hvetjandi og veita innblástur,
gera lágmark eitt góðverk á dag
ásamt því að gera eitthvað nýtt á hverjum degi.
einnig er ég með markmið eins og þau að drekka ekkert gos,
reyna að sneiða hjá sykri og hvítu hveiti,
skera niður um 10 loka kílóin.


Nú þegar hef ég staðið við þetta allt í 4 daga.
2 kíló eru farin af og allt að gerast.
Ég er búin að synda, hjóla, hlaupa,
og nýta hreyfingu á allann máta sem ég get.
Ég er búin að gera eitthvað nýtt á hverjum degi
og veit að ég gat veitt innblástur.


Líðanin sem fylgir þessu er æðisleg,
og ég er bjartsýnari en nokkru sinni fyrr.
Yfirleitt á þessum tíma dett ég nefnilega í gryfju skammdegisþunglyndis,
en mér hefur ekkert fundist kræla á því þetta haustið.
Enda er þetta búið að vera yndislegt haust so far.


En það sem mig langar bara að segja að líðanin sem fylgir markmiðum meistaramánaðarins,
er ótrúleg svo hví ekki að vera meistari alla mánuði ársins?
Vera alltaf besta útgáfan af sjálfum sér?
Eitt er víst að batnandi mönnum er best að lifa.
Gleðilegan föstudag elsku lesendur.

- Inga Sörens.

Thursday blues. 

3.október 2013 - Inga Sörens.

Er þetta alltaf spurning um að vera hægra megin eða vinstra megin?
að velja hvort maður sé svartur á hvítu eða hvítur á svörtu?
Hvað ef mig langar bara að vera bleik á grænu?

Stundum skil ég ekki alveg fyrirfram ákveðnar hugmyndir samfélagsins um að tengja ákveðið útlit við ákveðna týpu. Eins og það að hel-tattúveraði gæinn sem reykir camel og er með sítt rautt skegg, af hverju er yfirleitt gert ráð fyrir að hann sé óábyrg týpa? Af hverju vinna ekki svoleiðis útlítandi menn í banka?
Af hverju er alltaf verið að taka fólk og troða því í kassa eftir því hvað það kann eða hvernig það lítur út? Fólk kemur fram við mig eins og ég sé vitlausari eftir að hárið mitt varð ljóst, og það er svo augljóst, alltíeinu ef ég labba upp að einhverri manneskju og bið um útskýringu á einhverju ákveðnu þá er bókað mál að ég fæ alveg þrefalt betri útskýringu heldur en þegar ég var dökkhærð! þetta á við um einfaldar spurningar eins og " hvað er klukkan?"... Alveg merkilegt einhvern veginn hvernig alltof margir virðast reiðubúnir til að dæma náungan af útlitinu jafnvel þó málshátturinn " Never judge a book by it's cover." sé oft í hávegum hafður.
Svo er það alveg merkilegt hvað margir segjast halda uppá það að dæma manneskju ekki af fyrstu viðbrögðum og segjast vera svona og hinsegin, eru síðan bara algjörir hípókrítar (ergo. hypocrites).. Það þykir mér alveg skelfilegt eins og ef manneskja segir við mann í laugardagsnætur trúnói úti í sígó að hún þoli ekki ákveðna týpu, svo kemur þessi ákveðna týpa og þá er manneskjan komin á allt annann pól í samræðunum! svona eins og fólk segi eitt við þig en annað við aðra og enn annað við enn aðra!... Það skil ég ekki, eins og einhverskonar concept um það að vera með marga persónuleika og vera einn persónuleiki í ákveðnum félagskap og annar í öðrum félagskap...

Einfaldast er bara að vera maður sjálfur og fylgja sínum hugskeytum og tilfinningum og sínu hjarta og þá getur nú ekki margt farið úrskeiðis. Eitt er víst að ekkert okkar losnar frá þessu lífi lifandi svo að hví ekki að njóta, standa með sjálfum sér því við endum víst öll ein í gröf.
Let's enjoy the ride, og hafa gaman af þessu,  vera við sjálf og sjá ekki eftir neinu.

 

-Inga Sörens.

1380010_10151678956442636_1680485822_n.jpg
988737_10151678955947636_1168971626_n.jpg
dsdfsd.jpg
644089_10151678956147636_1271756616_n.jpg
564004_10151678954767636_945708363_n.jpg
996849_10151678956292636_1753866565_n.jpg
1235129_10151678954917636_130955640_n.jpg
1381910_10151678955797636_1427380783_n.jpg
1013562_10151678969077636_896111000_n.jpg

Haustið er komið kæru landsmenn.

halló. ég var að prufa photoshop.

Of Monsters And Men.

héldu fría útitónleika á Vífilsstaðatúni í Garðabæ þann 31.ágúst síðastliðin. Ég ákvað að kíkja og reyna að smella nokkrum myndum af þessarri hrikalega flottu hljómsveit spila á heimavelli og í úrhellisrigningu. 

Haustlitir nálgast.. allt að gerast!

Þetta er nauðsynleg hugmynd og raunverulega nauðsynleg vitneskja fyrir fólk svona á meðan geitungarnir eru að herja á okkur til dæmis.. Hérna eru bollakökuform sett á hvolf yfir drykkinn, til að halda flugum og skordýrum frá. 

Bollakökur hafa verið gríðarlega vinsælar hér á landi uppá síðkastið. Hérna er svolítið skemmtileg lausn til að breyta aðeins til og fá hjartalaga bollaköku.

Skemmtileg tilbreyting á eggjum. 
Hægt að setja þau í muffins-bakka og baka þau svona. 

Hérna er vínrekki notaður sem geymsluhólf fyrir tréliti. Þetta er einnig hægt að nota sem geymslurými fyrir ýmislegt fleira!

Rakst á þessa sniðugu lausn til að geyma make-up bursta :)

Mjög aðgengilegt og þægilegt.
 

Þetta virkaði kannski vera góð hugmynd í fyrstu...

Sumir vilja brenna á meðan þeir borða...

Svona leið mér í morgun þegar vekjaraklukkan hringdi...

Sumir hlutir eru mikilvægari en aðrir....

Koma svo! Reynum aðeins að skerpa okkur fólk! 
Þetta eru baara vandræðaleg mistök....

Lag næturinnar hjá mér... Föstudagskvöldið 30.ágúst 2013

Í kvöld eru eflaust einhverjir sem láta sig hafa það að vaða út í storm og óveður til að fara í 101 og finna sér stundarást. Ekkert að því samt. Bið ykkur bara vel að fara og góða skemmtun! Veit að það er góð stemning á Players á Gullinbrú þar sem Ingó Veðurguð heldur uppi fjörinu á bjórkvöldi Basic House Effect, en þeir strákarnir munu halda uppi fjörinu í kvöld. Einnig er líka margt um að vera annaðkvöld þar sem að Skálmöld verður á Gamla Gauknum en einnig Of Monsters And Men með fría tónleika við Vífilstaðatún og hvet ég alla til að kíkja á það. 
Góða helgi elsku vinir og endilega senda mér batnaðarkveðjur! 

-ingaló.

Jei, síðan er komin í gang.

ingalo.tk, endilega smella á like :)
endilega kíkið líka í photos, þar er hægt að sjá myndir sumarsins eftir mig, komnar nokkrar frá menningarnótt, frá carlsberg garðpartýi og ýmsu fleiru.

Nú, ef þið kíkið í videos þá getiði séð nokkur vídjó frá mér og svona allskonar fínerí. 
Takk fyrir að fylgjast með.

Ingaló.

Smá brot af myndunum sem ég tók á Menningarnótt í Reykjavík 2013.

Smá bloggfærsla. 23.ágúst2013

Jæja nú er farið að setjast smá haust í hjörtu landsmanna.
Það sér maður á geispunum í strætó á dimmum morgnum, sem verða dekkri með hverjum deginum sem líður. Sumir taka geispana á næsta þrep með því að einfaldlega sofna í strætó, og fara framhjá réttri stoppistöð og vakna svo akkurat, fá smá kvíðakast og spretta svo eins og fætur toga útúr strætónum, jafnvel svo hratt að fæturnir fara of hratt fyrir hálfsofandi líkamann svo manneskjan nánast dettur út úr strætónum. 
Öll þessi morgunhegðun þykir mér með eindæmum gráglettin og fyndin.
Ég var aldrei morguntýpa, og fyrir nokkrum árum þá hefði þessi manneskja geta verið ég. 
En ekki lengur. 
Eitthvað ótrúlegt hefur gerst innra með mér sem veldur því að ég GET vaknað við vekjaraklukku af sjálfsdáðum, dregið mig á fætur og arkað minn veg í skólann. Enda er þetta kannski í fyrsta skipti í verulega langan tíma sem ég finn raunverulegan metnað og vilja í að gera eitthvað. #stolt!
Það er svo skrýtið að vera búin að vera að gera eitthvað í sirka 3 ár, og vera svo komin á það þrep núna að það er það eina sem ég geri allan daginn. Ég er loksins í námi sem leggur ekki áherslu á stærðfræði eða sýningarmennsku, heldur bara einfalda vefsmíði, ljósmyndun, grafíska miðlun og einhvern veginn allt það sem ég hef verið að safna inn í mitt áhugasvið síðastliðin ár. 

Ég trúi núna á það að maður geti dottið og staðið upp,
en það er bara ekki nóg að standa bara upp, 
maður verður að ganga af stað líka. 

Nú eru margir Íslendingar farnir að minnka brosið sem óhjákvæmilega fylgir þessu yndislega íslenska sumri, og farnir að finna fyrir vott af skammdegisþunglyndinu sem ávallt virðist hrjá okkur á þessum árstíma. 
Það þykir mér skelfilegt, því í öllu er hægt að finna bjarta hlið.
Sumarið er gott, en veturinn getur verið yndislegur líka. 
Bara finna sér eitthvað notalegt að gera, klæða kuldann í burtu svo hann hafi ekki áhrif, setja upp ljósaseríur og gera hreiðrið hlýlegt og notalegt. 
Það sem er helst að frétta af mér er að ég var skráð í maraþon (10km/21,1km) Íslandsbanka á morgun, Menningarnótt en ég mun sennilega ekki hlaupa sökum þess að ég er komin með lungnabólgu. Læt það samt ekki stoppa mig í að taka myndir um helgina, en býst fastlega við því að ég skilji hlaupaskónna eftir og taki bara með mér myndavélagræjur. 
Þá ætla ég helst að kíkja á tónleikana á Arnarhóli, sem og á Ingólfstorgi og svo á flugeldasýningin víst að vera engu lík. Þetta verður fjör. 
Langaði bara að henda inn smá orðsendingu hingað þar sem ég hef ekki gert það í töluverðan tíma núna. 
Endilega haldið áfram að fylgjast með hérna, og like-a :) 

-ingaló.
 

Hugurinn stundum leitar til þín,
Það er eins og hjartað vilji kalla.
Viltu koma aftur til mín?
Viltu elska mig alla?

 

Ég hef gefið þér svo margt,
Það er sem sálin eigi ei meir.
Stundum virðist lífið hart,
Einkum þegar falleg sál deyr.



Hjartað mitt stöðugt þig þráir,
Á hvarmi fellur tár,
hver er þessi stúlka sem þú dáir?
Hennar fegurð ó hennar hár.

Muntu einhvern tímann sjá mig,
í þeim ljósgeisla sem nú á hana skín,
Mun ég einhvern tíman sjá þig,
og geta verið þín? 



Hvenær mun okkar tími koma,
og í lífi mínu verða bjart á ný,
að eilífu skal ég þér lofa,
að í hjarta mér ætið ég verð þín. 



Ef áfram sérðu ekkert nema hana,
þá geng ég áfram minn veg,
í frosthörku og byl, þar til örlögin mér bana,
og fagra stjörnu ég mér vel.

Á þessarri stjörnu mun ég vera,
til hennar geturðu séð,
og fundið ástina sem ætíð ég mun bera,
en aldrei gat ég téð. 

 

 

IS2013

© 2013 by IS. All Rights Reserved.

bottom of page