
BLOG
Meistaramánuður að hefjast..
Inga Sörens. 1.október 2013.
Jæja nú er haustið komið og tími til kominn til að taka seinasta hluta átaksins.
Þetta er búin að vera mikil barátta og búið að gera mér mikið gott.
Ég hóf átak 1.október 2012, og hét mér þá að laga líkamann minn og vinna í honum
þar til ég yrði í því formi sem mig hefði alltaf langað að vera í.
Nú eru komin 27 kíló af, og nú er bara að ná seinustu 10kg af.
Það verður heldur betur áskorun.
Seinasti spretturinn er alltaf erfiðastur held ég.
Ég set markið þó hátt og get huggað mig við
það að standa vel að vígi hvað varðar það að hafa
kort í Mjölni og fá ókeypis í sundhöllina sem er
við hliðina á skólanum mínum. núna verður hver
einasta eyða í skólanum nýtt í það að fara að synda.
Einnig er ég komin með hjólið mitt niður í 101 og er stefnan tekin á að hjóla töluvert.
Þó fannst mér gott að spjalla aðeins við
mömmu um þennan meistaramánuð.
Margir hugsa um meistaramánuðinn sem bara
eitthvað svona til að fara í líkamlegt átak og
ná af sér þyngd eða auka þolið eða eitthvað þessháttar,
en hún mamma sagði að það væri svo sniðugt
að nýta svona lagað líka í mannbætandi markmið.
Manneskjan virkar nefnilega þannig að við
hættum aldrei að geta bætt okkur og á hverjum
degi getum við bætt okkur, lært og þroskast.
Við getum alltaf orðið betri en við erum í dag
og í dag erum við alltaf betri en í gær.
Hún talaði um markmið eins og að heimsækja ömmu sína oftar,
eins og að lesa bókina sem er búin að vera á náttborðinu endalaust lengi.
Allskonar svoleiðis, gera eitt góðverk á dag og ýmislegt fleira.
Þetta fannst mér verulega góður punktur
og því hef ég verið að vinna í því í allan dag að
finna slík markmið, mannbætandi markmið.
Ég vona að ég geti amk orðið betri en ég var í gær.
Ég trúi því að við getum öll orðið betri en við vorum í gær.
ímyndaðu þér þá hvernig allir verða eftir nokkur ár.


